
Fyrirtækjalausnir
Flotasalan selur bæði af lager og leitar að bílum eftir óskum viðskiptavina. Við seljum óháð fjölda bíla í hverri pöntun og verðin eru önnur en í smásölu. Í flotadeildinni starfar fólk sem hefur mikla reynslu af sölu til fyrirtækja, innflutningi og sölu bifreiða. Við einsetjum okkur að vera fyllilega samkeppnishæf í verðum og afhendingartíma á stærri pöntunum.
Við bjóðum upp á að halda utan um bílaflota fyrirtækja með það að markmiði að lágmarka afföll og annan kostnað við endurnýjun flotans. Starfsmenn flotadeildarinnar leita daglega eftir lægstu verðum á mörkuðum víðsvegar um Evrópu og tryggja þannig viðskiptavinum sínum lægsta mögulega verð á þeim bílum sem þeir þurfa hverju sinni.
fyrirtaeki (hjá) bensinlaus.is
